ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Google ætlar að hafa betur gegn Facebook

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:00 › 2. ágúst 2010

Google ætlar sér sigur í baráttu við Facebook um að eiga stærstu samskiptasíðu heimsins. Facebook eins og allir vita nýtur gífurlegra vinsælda en Google reyndi að koma með svipaða síðu sem átti að ná meiri vinsældum. Síðan heitir Buzz en hefur ekki alveg náð þeim hæðum sem Google vonaðist eftir.

Google hefur því tekið upp á því að þróa síðuna betur og ætlar að gera það með því að slá Facebook við með aukasíðum. Google hefur til að mynda rætt við margar netleikjasíður til þess að fá þær til að keyra leiki sína á Buzz. Með því vonast Google til að fjölga notendum Buzz og ná þar með afgerandi markaðsforskoti í samskiptasíðnageiranum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?