Frá einkavæðingu til uppgjörs. Björgólfur Thor opnar vefsíðu þar sem hann gefur sína hlið af viðskiptum sínum hérlendis, 8 ár aftur í tímann.
Í dag klukkan 14 verður opnuð vefsíðan BTB.is sem fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson mun nota til að birta gögn yfir öll hans viðskipti hér á landi aftur til ársins 2002. Auk þess að birta gögn verður síðan einskonar bloggsíða auðmannsins.
„Þetta verður vettvangur fyrir hann til að setja fram upplýsingar um sín viðskipti hér á landi síðustu árin frá 2002. Það er rakið einkavæðingaferli og kaupin á Landsbankanum mjög ítarlega, saga Straums-Burðaráss, aðkoma hans að Actavis frá upphafi. Þetta verður mjög mikað af göngum sem þarna verður að finna,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona Björgólfs Thors í samtali við DV.is.
Skuldauppgjör Björgólfs eftir efnahagshrunið fær þá einnig veigamikinn sess á síðunni og segir Ragnhildur að í inngangi síðunnar muni fjárfestirinn tíunda tilgang síðunnar sem verði í grunninn að varpa ljósi á aðkomu sína að íslensku viðskiptalífi.
Aðspurð hvort Björgólfur fari ekkert lengra aftur í tímann, nánar tiltekið til Rússlandstíma hans og föður hans Björgólfs Guðmundssons sem þykir sveipaður mikilli dulúð, segir Ragnhildur að sagan af uppbyggingu verksmiðju þeirra þar, sem lagði grunninn að veldi þeirra, hafi verið sögð margoft áður. Líklega yrði kæmu viðskiptin í Rússlandi eitthvað við í forsögunni en fyrst og fremst væri þessi síða tileinkuð viðskiptum hans hér á landi.
Sem fyrr segir verður síðan sett í loftið klukkan 14 í dag á slóðinni btb.is og verður opnunin án allra tilþrifa enda Björgólfur Thor ekki staddur á landinu að sögn Ragnhildar. „Hann verður bara opnaður og verður opinn öllum.“
Hún segir sömuleiðs að síðan verði í framhaldinu vettvangur fyrir Björgólf Thor til að bregðast við fréttum sem skjóta upp kollinum. Einskonar bloggsíða.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ólafur tekur framúr hinum
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
