ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Björgólfur: „Þeir sköpuðu aldrei nein verðmæti í raun“

14:53 › 19. ágúst 2010
Björgólfur Thor er ósáttur við að vera settur undir sama hatt og útrásarvíkingarnir sem stunduðu hringekjuviðskipti.

Björgólfur Thor er ósáttur við að vera settur undir sama hatt og útrásarvíkingarnir sem stunduðu hringekjuviðskipti.

„Ég er ósáttur við að vera settur undir sama hatt og þeir, sem stunduðu endalausa hringekju eigna sín á milli með skuldsettum yfirtöku. Þeir sköpuðu aldrei nein verðmæti í raun, heldur hækkuðu bara verð á pappírum,“ skrifar Björgólfur Thor Björgólfsson á nýja vefsíðu sína, btb.is, þar sem hann segir afdráttarlaust að hann sé ekki einn af þeim sem hingað til hafa verið taldir til hinna íslensku útrásarvíkinga.

„Slík viðskipti hef ég ekki stundað. Ég flutti beinharða peninga inn í landið frá arðbærum fjárfestingum erlendis. Flæði peninga inn í landið fyrir mína tilstuðlan var sambærileg því flæði peninga úr landi, sem margir aðrir viðskiptamenn töldu sér sæmandi,“ skrifar Björgólfur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?