ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Björgólfur: „Ég hef aldrei ætlað mér annað en uppbyggingu á Íslandi“

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
14:51 › 19. ágúst 2010
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur opnað heimasíðuna BTB.is þar sem hann fjallar meðal annars um fjárfestingar sínar á Íslandi.

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur opnað heimasíðuna BTB.is þar sem hann fjallar meðal annars um fjárfestingar sínar á Íslandi. Mynd DV

„Við þá, sem ekki þekkja til fjármögnunar fyrirtækja minna, vil ég því segja að ég hef aldrei tekið til mín ásakanir um að íslenskir viðskiptamenn hafi farið á eyðslufyllerí erlendis fyrir íslenskt lánsfé eða hagnað af sölu fyrirtækja á Íslandi.“ Þetta segir Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir á nýrr heimasíðu sinni, BTB.is.

Á síðunni fer hann ítarlega yfir fjárfestingar sínar og þá umfjöllun sem um hann hefur verið í fjölmiðlum auk þess að fara yfir einkavæðingu Landsbanka Íslands.

Hann segist vera tilbúinn að svara kallinu eftir hjálp við að reisa íslenskt efnahagslíf úr rústum hrunsins. „Það vil ég gera og þess vegna furða ég mig á þeim röddum, sem segja að aldrei megi semja við mig um fjárfestingar af neinu tagi, enda sé ég einn þeirra sem ábyrgð beri á hruninu.“

„Ég hef aldrei ætlað mér annað en uppbyggingu á Íslandi,“ segir Björgólfur. Hann bendir á að eignir sínar hafi verið svo miklar á tímabili að hann hafi verið skráður í hóp auðugustu manna heims. „Slík skráning er aðeins staðfesting á að þeir sem best til þekkja vita að ég stundaði ekki sýndarviðskipti með upplognar eignir, heldur eðlileg viðskipti með raunverulegar eignir, segir hann.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?