Fjölmennt var fyrir utan dyr Héraðsdóms Reykjavíkur í morgunsárið þar sem mál níumenningana var tekið fyrir. Símamyndir: Róbert
Nú er hafin í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrirtaka í máli á hendur níumenningunum sem ákærðir eru fyrir árás gegn Alþingi í desember 2008. Fjöldi fólks var saman kominn fyrir framan héraðsdóm í morgun til að vera viðstaddur fyrirtökuna. Til ryskinga kom milli lögreglu og viðstaddra í héraðsdómi.
Níumenningunum er gefið að sök að hafa með mótmælum sínum í Alþingishúsinu í desember 2008 gert árás gegn Alþingi og var það ákært á grundvelli 100. Greinar hegninarlaganna. Síðast var ákært á grunvelli þeirrar lagagreinar árið 1949 eftir mótmælin á Austurvelli þegar Ísland gekk í Nato.
Ákæran yfir mótmælendunum hefur vakið hörð viðbrögð og réttarhöldin verið harðlega gagnrýnd víða. Í júní síðastliðnum söfnuðust meðal annars 700 undirskriftir sem afhentar voru forseta Alþingis þar sem fólk lýsti því yfir að það væri samsekt níumenningunum fyrir árás á Alþingi. Hefur þess verið krafist að málið verði látið niður falla. Þá hefur komið til átaka milli stuðningsmanna níumenningana og lögreglu í réttarsal, við þingfestingu málsins, þar sem vísa þurfti fólki úr Héraðsdómi Reykjavíkur með valdi. Vegna þeirrar uppákomu var ákveðið að hafa fyrirtökuna óvenju snemma á dagskrá héraðsdóms í morgun.
Verði mótmælendurnir fundir sekir ber að dæma þá í að minnsta kosti árs fangelsi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða
Snorri í Betel: „Ég met þetta þannig að Biblían sé að segja satt“
Segir Bjarna Ben leika trúð í Vafningsmálinu