ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Lögreglan: „Fólk ætti að líta oftar í eigin barm“

14:27 › 16. ágúst 2010
Árið 2009 barst Neyðarmóttöku vegna nauðgana tilkynning vegna um 130 nauðgana og 67 mál voru kærð til lögreglu. Margar þeirra eiga sér stað á salerni skemmtistaða. Fjórar nauðganir voru sagðar hafa átt sér stað á skemmtistaðnum Apótekinu, sem sést hér á myndinni.

Árið 2009 barst Neyðarmóttöku vegna nauðgana tilkynning vegna um 130 nauðgana og 67 mál voru kærð til lögreglu. Margar þeirra eiga sér stað á salerni skemmtistaða. Fjórar nauðganir voru sagðar hafa átt sér stað á skemmtistaðnum Apótekinu, sem sést hér á myndinni.

Björgvin Björgvinsson hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar bendir á að flest nauðgunarmál sem berist lögreglunni séu misbeitingarmál, sem felast í því að viðkomandi sé í of annarlegu ástandi til að geta varist nauðguninni vegna ölvunar, lyfjanotkunar eða fíkniefnaneyslu. „Það er líka annað í þessu að það er alltaf undir hverjum og einum komið að vera meðvitaður um það að ef þeir drekka mikið, taka lyf eða fíkniefni þá getur ýmislegt gerst. Vandamálið felst meðal annars í því að fólk leitar ekki inn á við og sér ekki að það er að setja sjálft sig í hættu með drykkju og dópneyslu. Oftar en ekki eru þessi mál tengd mikilli áfengisnotkun og ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. Það er erfitt hvað það er algengt að fólk bendir alltaf á einhverja aðra og reynir að koma ábyrgðina yfir á þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“

Flestar nauðganir í heimahúsum
Rætt var við Björgvin vegna fjölda nauðgana á síðasta ári en þá voru 67 nauðganir kærðar til lögreglu eða mun fleiri en árið 2008 þegar þær voru 37. Það sem af er þessu ári hafa 46 mál verið kærð til lögreglu þannig að nauðgunum virðist vera að fjölga. Árið 2009 bárust mun fleiri tilkynningar til Neyðarmóttöku en lögreglu, eða um 130, enda virðist reynslan vera sú að um helmingur nauðgunarmála sem koma á borð Neyðarmóttöku vegna nauðgana séu kærðar til lögreglu.
Lögreglu og Neyðarmóttöku ber saman um það flestar nauðganirnar fara fram í heimahúsum.

Lögreglan ekki „frelsandi engill“
Þó voru 14 nauðganir framdar á skemmtistöðum árið 2009 og þar af fjórar á sama staðnum, Apótekinu, samkvæmt upplýsingum Neyðarmóttökunnar. Gunnar Traustason, eigandi staðarins hafði ekki fengið þær upplýsingar áður en við hann var rætt og Stefán Eiríksson lögreglustjóri gat ekki staðfest að gripið hefði verið til neinna sérstakra ráðstöfunar varðandi þennan stað. „Ég veit ekki hvort óstaðfestar fregnir af fjórum nauðgunum á einum stað sé ástæða til viðbragða, ég veit það ekki. Það kallar á skoðun af okkar hálfu.“
Björgvin segir að það megi alltaf bæta vinnubrögðin en margir komi að málum. „Það er alltaf eitthvað hægt að gera en það er kannski ekki mikill vilji til þess. Lögreglan er ekki eins og frelsandi engill sem hefur ráð undir rifi hverju. Það eru margir sem hafa eitthvað um þetta að segja, þeir sem sækja staðina, þeir sem reka þá og starfa þar og borgaryfirvöld. Það eina sem við getum gert er að sjá til þess að þeim öryggisráðstöfunum sem við leggjum til sé fylgt eftir.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?