ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Biskupi yfirsást bréf organista

12:07 › 16. ágúst 2010
Karl Sigurbjörnsson biskup. Kannaðist ekki við bréf organista í tíð Ólafs Skúlasonar í Bústaðakirkju þar sem ósiðlegu athæfi Ólafs er lýst.

Karl Sigurbjörnsson biskup. Kannaðist ekki við bréf organista í tíð Ólafs Skúlasonar í Bústaðakirkju þar sem ósiðlegu athæfi Ólafs er lýst.

Samkvæmt svörum frá Biskupsstofu við fyrirspurn DV síðastliðinn föstudag kannaðist Karl Sigurbjörnsson biskup ekki við bréf, sem fyrrverandi organisti Bústaðakirkju kom til kirkjuráðs, þar sem hann lýsir því þegar hann varð vitni að ósiðlegu athæfi Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups, í myrkraherbergi í kirkjunni.

Organistinn Birgir Ás Guðmundsson kom bréfinu til kirkjuráðs sem framlagi til umræðu um frásagnir Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur, sem var ein fjögurra kvenna sem greindi frá meintu kynferðisofbeldi biskupsins fyrrverandi.

„Hann veit ekki hvaða bréf þetta er. Hann kannast ekkert við þetta,“ sagði Ragnhildur Benediktsdóttir sem er skrifstofustjóri Biskupsstofu. Biskup kannaðist hvorki við að hafa séð bréfið né að það hefði verið tekið fyrir á þessum fundi kirkjuráðs.

Bréfið sem hann afhenti kirkjuráði fyrir hönd Birgis Ás var á meðal þeirra gagna sem Sigrún Pálína Ingvarsdóttir lagði fyrir kirkjuráð í fyrra, þegar hún fór fram á afsökunarbeiðni af hálfu kirkjunnar. Það gerði hún þegar hún fékk áheyrn ráðsins. Biskup sat þann fund eins og allir aðrir fulltrúar kirkjuráðs. Og þegar hún afhenti bréfið kynnti hún bréfið og efni þess sérstaklega. Sigrún Pálína segir svör biskups ekki geta hafa verið sannleikanum samkvæm.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?