Birgir Ás Guðmundsson organisti í Bústaðakirkju á árunum 1972-1977, þeim tíma er Ólafur Skúlason var starfandi sóknarprestur, sendi kirkjuráði bréf. Bréf Birgis hefur farið leynt, líkt og bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur til kirkjuráðs. Biskupsstofu er mikið í mun að halda bréfinu og efni þess leyndu, eins og DV komst að raun um þegar það óskaði eftir bréfinu í morgun en þá kannaðist biskup ekki við tilvist þess.
DV hefur bréfið nú undir höndum og þar lýsir Birgir ósiðlegu athæfi prestsins með ungri stúlku í skrúðshúsinu. Birgir gekk óvart inn á prestinn og segir: "Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, en prestur brást hinn versti við og vandaði mér ekki kveðjunar fyrir að ryðjast svona inn."
Bréfið skrifar Birgir samkvæmt bestu samvisku og er tilraun hans til þess að greina frá því sem hann upplifði á þessum árum. "Ég er bundinn trúnaði um það sem okkur fór á milli. En veit þó ýmislegt. Eitt get ég þó sagt hann að hann var haldinn mikilli kynferðislegri þrá eða löngun sem kom fram í óeðli."
Konan steig aldrei fram til að segja sögu sína. Birgir segir í bréfi sínu að hún hafi verið ung og falleg en útgrátin. Árið 1989 var Ólafur kjörinn biskup Íslands og gegndi hann þeirri þjónustu til ársins 1997.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
