ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Femínistar styðja baráttu biskupsdóttur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:36 › 12. ágúst 2010
Guðrún Ebba studdi Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur þegar hún óskaði eftir áheyrn Kirkjuráðs vegna ásakana sinna um að biskup hafi beitt hana kynferðisofbeldi á sínum tíma.

Guðrún Ebba studdi Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur þegar hún óskaði eftir áheyrn Kirkjuráðs vegna ásakana sinna um að biskup hafi beitt hana kynferðisofbeldi á sínum tíma.

Femínistafélag Íslands tekur undir með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur sem hvetur til þess að Þjóðkirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi og virkan þátt í baráttu gegn því. Eins og DV greinir frá í blaði sínu í dag hefur Guðrún skrifað biskupi bréf þar sem hún krefst uppgjörs og að kirkjan horfist í augu við kynferðisbrot.

Í ályktun Femínistafélags Íslands segir að prestar og aðrir trúarleiðtogar séu í valdastöðu gangvart þeim sem til trúfélaga leita eða starfa innan þeirra. Misnotkun á slíkri stöðu sé gríðarlega alvarleg.

„Femínistafélagið fagnar þeim skrefum sem Þjóðkirkjan hefur þegar tekið til að bregðast við kynferðisofbeldi en brýnir hana og önnur trúfélög til frekari aðgerða.“

Guðrún Ebba er dóttir Ólafs Skúlasonar, fyrrum biskups Íslands, en fjórar konur sökuðu hann á sínum tíma um kynferðislega áreitni. Hún hefur lengi sinnt óeigingjörnu starfi þar sem hún ehfur barist fyrir réttindum barna og kvenna sem verða fyrir ofbeldi og sinnt forvarnarstarfi gegn kynferðisofbeldi með meðstjórnandi samtakanna Blátt áfram.

Sjá einnig:
Kirkjan leynir bréfi biskupsdóttur



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?