Íbúi Eskifjarðar hafði samband við DV og vakti athygli á því að dreifibréf sem honum barst í dag, 9. júní, kom fimm dögum eftir að vatn mengaðist í kjölfar mengunarslyss í löndunarhúsi fiskimjölsmiðju Eskju síðastliðinn sunnudag. Í bréfinu er íbúum ráðlagt að sjóða allt neysluvatn næstu daga.
Þá segir að veitan verði skoluð út um helgina en það starf fer fram í samstarfi við Heilbrigðiseftirlitið. Í sýnitöku sem fór fram á vegum Heilbrigðiseftirlits Austurlands fundust gerlar sem geta leitt til þess að fólk verði veikt. Ekki er vitað til þess að einhver hafi veikst vegna mengaðs drykkjarvatns. Dreifibréfið:
„Til íbúa og fyrirtækja á Eskifirði.
Vegna mengunarslyss sem varð í fiskimjölsbræðslu Eskju hafa borist gerlar í neysluvatn á Eskifirði, þar á meðal kólígerlar, þó ekki saurkólígerlar. Þess vegna er íbúum eindregið ráðlagt að sjóða neysluvatn þar til bætt ástand þess hefur verið staðfest. Einnig eru íbúar hvattir til að láta renna vel úr krönum til að flýta fyrir útskolun mengaðs vatns.
Frá því að slysið varð á sunnudag (4 júlí, innsk.) hefur útskolun staðið yfir. Niðurstöður sýnatöku heilbrigðiseftirlits Austurlands á mánudag og miðvikudag leiða til þess að útskolun verðr aukin um helgina. Ný sýni verða svo tekin á mánudag. Íbúum verða tilkynntar niðurstöður þeirra um leið og þær berast. Allar aðgerðir eru í náinni samvinnu Vatnsveitu Fjarðabyggðar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Farið hefur verið yfir orsakir mengunarslyssins og hefur Eskja gert ráðstafanir til að þetta geti ekki endurtekið sig. Janframt verð kannaðir frekari möguleikar Vatnsveitu Fjarðabyggðar til að auka varnir gegn því að mengun geti boris inn í erfið frá notendum hennar.
Fjarðabyggð, 9. júlí 2010
Vatnsveita Fjarðabyggðar
Heilbrigðiseftirlit Austurlands.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
