ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Tillaga Jóns Gnarr samþykkt: Miklatún verður Klambratún

Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is
18:00 › 8. júlí 2010
Miklatún verður aftur Klambratún.

Miklatún verður aftur Klambratún.

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, hefur lagt til að nafni Miklatúns verði aftur breytt í Klambratún. Tillaga hans var samþykkt einróma í borgarráði Reykjavíkur. Nafni Klambratúns var breytt í Miklatún á sjöunda áratugnum en margir kalla túnið ennþá Klambratún.

Borgarfulltrúar samþykktu einnig að söguskilti yrði sett upp á túninu síðar í sumar en bóndinn Christian H. Christensen sem þar bjó síðstur bænda hefði orðið 100 ára í þessum mánuði.

Þá lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögur um flutning hverfabækisstöðvar framkvæmdasviðs af túninu og starfsemi ÍTR þar í staðinn, yndisgarð fyrir eldri borgara og að settur verði niðurgrafinn hjólabrettagarður á túnið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?