Bandaríski heimildarmyndagerðarmaðurinn Bill Still, sem frægastur er fyrir myndina The Money Masters, hefur sent Jóni Gnarr borgarstjóra bréf þar sem hann stingur upp á því að hann stofni banka, banka í eigu Reykvíkinga.
Bill Still kom hingað til lands á dögunum og stofnaði ásamt öðrum samtökin Vinnuhópur um efnahagsúrbætur Íslands (e. Icelandic Monetary Reform Working Group).
Í bréfinu til borgarstjóra skrifar Bandaríkjamaðurinn að best væri að Reykjavíkurborg myndi stofna banka, sem til gamans mætti heita „Besti bankinn“.
„Reykjavíkurborg setur allt skattfé sitt inn í bankann. Sem dæmi getum við sagt að það séu 200 milljónir króna á ári. Það er upphæð sem hægt er að margfalda með 9 samkvæmt alþjóðlegum reglum um bankastarfsemi. Ef við notum regluna um brotaforða (e. fractional reserve), sem er í góðum metum hjá AGS, gæti Besti bankinn um leið lánað fyrir 1,8 milljarða króna. Þar sem Reykjavíkurborg á bankann, gæti hann lánað hverjum sem er, til dæmis borgarsjóði, með engum vöxtum - já, það er rétt, ENGUM vöxtum. Þetta er algerlega löglegt. Þetta er ástæðan fyrir því að Norður-Dakóta er EINA fylkið í Bandaríkjunum með fjármálin í lagi, engar skuldir og lægsta atvinnuleysi í landinu,“ skrifar Bill Still.
Sögulegt tækifæri
„Og það batnar og batnar. Reykjavíkurborg á aðrar eignir. Í samræmi við sömu alþjóðlegu reglur um bankastarfsemi, fær borgin að telja alla vegi, brýr og byggingar inn í eignasafnið sitt. Sú upphæð er há! Þú myndir auðvitað ekki vilja að fjármagnið yrði fyrir verðbólgu, og svarið er að þú myndir ekki lána nándar nærri eins mikið og þú gætir, en ímyndaðu þér þann fjölda fólks sem þú gætir lánað fyrir tvo milljarða króna? Auðvitað gæti Reykjavíkurborg notað fjármagnið til að laga efnahaginn að öðru leyti auk þess að halda sköttum lágum á þessum erfiðu tímum. Það er það sem Norður-Dakóta gerir með bankann sinn,“ skrifar heimildarmyndagerðarmaðurinn sem lofar Jóni að Besti bankinn myndi heppnast vel.
„Þú hefur sögulegt tækifæri til að breyta peningastefnu Íslands. Ef þú samþykkir Besta bankann mun Alþingi fylgja eftir. Ef íslenska þjóðin nær að flýja skuldasöfnunarkerfið sem AGS reynir nú að þrælka Ísland með, mun fjárfestingarfé frá öllum heiminum renna til Íslands. Við hjónin myndum með glöðu geði leggja sparifé okkar inn í Besta bankann því við vitum hversu sterkur hann yrði. Margir aðrir Bandaríkjamenn myndu gera það sama.“
DV ræddi við Bill Still á dögunum. Hann segir skuldasöfnun rót allra vandamála í fjármálakerfum nútímans.
Burt með skuldir
„Ég er nýkominn frá Svíþjóð og Þýskalandi og nú er ég hér. Það er mjög athyglisvert að sjá að fólki af öllum þjóðernum virðist líða eins; að stjórnmálamenn svari alls ekki kalli kjósenda og að um leið og þeir nái völdum sogist þeir inn í ginnungagap peninga og valda og missi sjónar á lýðræðislegum umbótum. Við sjáum að borgarbúar í Reykjavík kjósa Besta flokkinn og ísbirni fram yfir gömlu valdhafana sem fólkið hefur misst trúna á. Fólk kvartar undan nákvæmlega sömu hlutunum í Bandaríkjunum,“ segir Bill Still sem segist hafa lesið sér til um hækkun húsnæðislána á Íslandi.
„Þetta er alveg ótrúlegt ástand og verra en í Bandaríkjunum, við höfum það ekki gott, en þó ekki jafn skítt og þið. En þrátt fyrir að ástandið sé slæmt eru góðu fréttirnar þær að það er til lausn sem getur bjargað ykkur. Lausnin er að Ísland gefi út eigin peninga án þess að fá peninga lánaða. Engin lönd skulu safna lánum. Ég útbjó stuðaralímmiða (e. bumper sticker) með íslenska fánanum þar sem segir „Burt með ríkisskuldir“. En svo komst ég reyndar að því að Íslendingar nota ekki slíka límmiða á bílum sínum! Það er kjarninn í lausninni. Ríki ættu ekki að fá að taka lán og bankar ættu ekki að geta lánað meiri peninga en þeir eiga. Þetta er svona einfalt.“
Skuldlausir peningar lausnin
„Það sem skapar hagsæld í ríkjum er að geta búið til eigin fjármagn án skuldsetningar, það er mikilvægasta vald stjórnvalda. Eini hængurinn á þessu er að stjórnvöld verða að stjórna peningamagninu svo að verðbólga myndist ekki. Ef þeim tekst það verður hagsæld í ríkinu. Þá þarf ekki að borga vexti af lánum og lönd eru ekki háð valdsviði lánardrottnanna.
Íslendingar þurfa ekki á lánum að halda. Þið getið búið til ykkar eigin fjármagn. Þið getið jafnvel borgað skuldir ykkar þannig, en þið borgið þá með ykkar eigin peningum, sem hafa orðið til skuldlaust á Íslandi,“ segir Bill Still.






Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“