ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Lögreglan ýtti höfði Grétars í gangstéttina

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
14:50 › 5. júlí 2010
Grétar Eiríksson var handtekinn eftir átök við lögregluna.

Grétar Eiríksson var handtekinn eftir átök við lögregluna. Mynd Hörður Sveinsson

  • Lögreglumaður þrýstir hné sínu ofan á höfuð Grétars. (Mynd Hörður Sveinsson)

    Lögreglumaður þrýstir hné sínu ofan á höfuð Grétars. (Mynd Hörður Sveinsson)Mynd Hörður Sveinsson

Grétar Eiríksson var handtekinn fyrir framan Seðlabanka Íslands eftir að hafa verið snúinn niður í jörðina. Var andliti hans einnig þrýst með hné lögreglumanns niður í stéttina.

Grétar var ásamt Ellen Kristjánsdóttur, dóttur hennar Betu Eyþórsdóttur, og einum öðrum manni við inngang Seðlabankans þegar mótmælin náðu hámarki nú fyrir stundu. Hafði hann komið sér fyrir við inngang bankans áður en lögreglan mætti á svæðið, líkt og þær Ellen og Beta höfðu gert.

Beitti hann mótspyrnu þegar færa átti hann út fyrir varðlínu lögreglunnar. Var það þá sem hann var handtekinn.

Lögreglan var vopnuð kylfum og táragasi en ekki kom til þess að þau vopn voru notuð. Lögreglan mætti á svæðið klukkan rúmlega korter yfir eitt en höfðu þá mótmælin staðið frá því klukkan tólf.

Grétar var áberandi í Búsáhaldabyltingunni og hefur verið framarlega í röð mótmælenda eftir hrun.

Mikil reiði var á meðal mótmælenda og hvöttu margir til þess að Ellen og Grétar yrðu varin árásum lögreglunnar. Meðal þeirra var Páll Heiðar sjómaður sem blés í vuvuzela lúður beint í andlit lögreglumanns.

Ekki voru allir mótmælendur sammála þeim aðferðum sem sumir mótmælendur, meðal annars Páll Heiðar, beittu og rifust mótmælendur innbyrðis vegna mismunandi aðferða við mótmælin. Voru til að mynda ekki allir á eitt sáttir með fúkyrði sem lögreglan var látin sitja undir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?