Margir Bandaríkjamenn njóta þess að fá sér pylsu þegar þeir mæta á völlin til að fylgjast með uppáhalds hafnaboltaliðinu sínu. Samkvæmt nýrri rannsókn gætu þeir þó hreinlega verið í lífshættu vegna þessa.
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að tuttugu og átta prósent þeirra matsölustaða á leikvöngum í Bandaríkjunum sem hýsa leiki í bandarísku hafnabolta-, ruðnings-, hokkí eða körfuboltadeildunum uppfylla ekki kröfur um hreinlæti við meðferð matvæla.
Kom í ljós að sumstaðar var vanrækslan slík að hún gat auðveldlega valdið alvarlegum veikindum eða jafnvel dauða þeirra sem neyttu matarins.
Allir matsölustaðir í Verizon Center í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington D.C., reyndust brotlegir í rannsókninni. Áberandi verst var þó staðan á matsölustöðum leikvanga í Florida fylki en þar var gerð athugasemd við yfir sjötíu og fimm prósent matsölustaða á sjö leikvöngum í fylkinu.
Aðeins matsölustaðir ellefu leikvanga hlutu engar athugasemdir í rannsókninni.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus