ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Kristinn Hrafnsson: Rekinn fyrir óendanlega fyndið agabrot

Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is
07:00 › 31. júlí 2010
„Þessi framsetning finnst mér óendanlega fyndin,“ segir Kristinn.

„Þessi framsetning finnst mér óendanlega fyndin,“ segir Kristinn. Mynd Kristinn Hrafnsson

Kristinn Hrafnsson, sem á dögunum var sagt upp störfum á RÚV, segir enga sérstaka ástæðu hafa legið að baki uppsögninni á RÚV. Rétt sé að föstudaginn 23. júlí hafi honum og Ingólfi Bjarna varafréttastjóra sinnast. „Hann var vaktstjóri þennan dag og vildi að ég væri með það sem kallað er stúdíóinnkoma í fréttatímann. Það felur í sér að fréttamaður fer í útsendingu í stúdíó og kynnir inn eigin fréttabrot, standandi við prik við hlið þularborðs.“

Kristinn tekur fram að oftar en ekki sé undarlegt leikrit skrifað í kringum þetta. „Mér hefur alltaf fundist þetta vera aulahrollsvaki og hef ekki viljað taka þátt í þessu. Þetta er hvorki fréttaefninu né fréttamanninum til framdráttar,“ segir Kristinn sem neitaði að taka þátt en Ingólfur Bjarni gaf sig ekki og ætlaðist til þess að Kristinn hlýddi fyrirskipun vaktstjóra. „Mér var ofboðið, rétti honum myndbandsspólu með hráefni í fréttina og sagði að hann gæti þá sjálfur unnið úr efninu því ég væri farinn. Hann kallaði á eftir mér að ég þyrfti þá ekki að koma aftur.“

Kristinn segist telja sig vera í fullum rétti til að hafa töluvert um það að segja hvernig fréttaefni hans er sett fram. „Það má ekki gleyma því að við erum að flytja fréttir sem eru merktar okkar nafni, andliti og rödd,“ segir hann og bætir því við að eftir tuttugu ára starf í ljósvakafjölmiðlum ætti hann að hafa þokkalega reynslu af því hvað virki og hvað ekki í sjónvarpi. „Þess utan mislíkaði mér þessi hroki, að reyna að hnika mér til með boðvaldi. Eins og ég sagði hef ég engar skýringar fengið formlega en ég hef heyrt af því að skýringin á því hvers vegna ég teljist ekki æskilegur áfram sé að ég hafi framið „agabrot“ með því að óhlýðnast fyrirmælum. Þessi framsetning finnst mér óendanlega fyndin,“ segir Kristinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?