Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
„Umferðin er alveg á fetinu hér innanbæjar,“ segir lögreglumaður í Borgarnesi í samtali við DV. Ennþá er mikill umferðarþungi um Borgarnes. Umferðin hefur gengið vel nú undir kvöldið og hefur ekki verið tilkynnt um nein meiriháttar slys.
Lögreglumaðurinn segir mikinn fjölda fólks vera í bænum en þar fer fram Unglingalandsmót UMFÍ. Umferðin er þung og hæg í gegnum bæinn og hefur umferð á svæðinu lítið sem ekkert minnkað með deginum.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir