Lögreglumenn í Cincinnati náðu ökuþrjót sem þeir eltu þegar hann ákvað að stoppa á rauðu ljósi. Lögreglumennirnir höfðu elt ökumanninn um nokkra stund en hann ók á rúmlega hundrað tuttugu og fimm kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfður hámarkshraði var níutíu kílómetrar á klukkustund.
Ökumaður bílsins, sem reyndist vera tuttugu og sex ára gömul kona, beygði út af þjóðveginum, þar sem lögreglan hóf að elta hana, og inn í íbúðahverfi. Þar hægði hún snarlega á sér og keyrði á löglegum hraða í átt að heimili sínu. Hún stoppaði svo á rauðu ljósi þar sem lögreglumennirnir nýttu tækifærið og stungu gat á dekkin á bílnum sem hún ók með prikum.
Lögreglan yfirbuguðu svo konuna með rafbyssum og handtóku hana en hún veitti lögreglunni harða mótspyrnu. Hún hefur verið ákærð fyrir að veita mótspyrnu við handtöku, að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu, hraðakstur og fyrir að aka án ökuleyfis.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus