ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Mótorhjólamanni veitt eftirför á þyrlu

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
23:01 › 30. júlí 2010

Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði lögreglu við að veita mótorhjólamanni eftirför. Maðurinn ók á ofsahraða í átt til borgarinnar. Lögreglumaður sem staddur var í þyrlunni gerði lögreglunni í Reykjavík viðvart sem sendi mótorhjól frá lögreglunni til móts við manninn.

Þegar maðurinn varð var við mótorhjól lögreglunnar sinnti hann ekki fyrirmælum um að stöðva heldur gaf í. Tveir vegatálmar voru settir upp til að reyna að stöðva manninn en hann ók í gegnum þá báða og stofnaði lögreglumönnum í mikla hættu.

Eftirförin náði svo inn í borgina. Maðurinn féll svo af hjólinu við Malarhöfða í Reykjavík. Hann var umsvifalaust handtekinn og færður til yfirheyrslu. Ekki liggur ljóst fyrir hvort að maðurinn hafi ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eða hvað honum gekk til með akstrinum.

Lögreglan á Selfossi segir manninn hafa stofnað fjölda fólks í hættu með glæfralegum akstri en umferð er víðast hvar þung.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.