Brot sextán ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Meðalhraði hinna brotlegu var hundrað og einn kílómeter á klukkustund en þar er níutíu kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað og sjö kílómetra hraða.
Brot þriggja ökumanna voru svo mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við Esjuberg. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru fimm hundruð og fimmtán ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða innan við eitt prósent, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Heldur fleiri brot voru mynduð á Suðurlandsvegi á miðvikudag en brot þrjátíu og fimm ökumanna voru mynduð þar. Meðalhraði hinna brotlegu var hundrað og tveggja kílómetra hraði á klukkustund en þarna er níutíu kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað og fjórtán kílómetra hraða.
Lang flestir keyra á löglegum hraða
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“