ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Lárus handtekinn við bandaríska sendiráðið

12:14 › 27. júlí 2010
Lárus var handtekinn af lögreglu í morgun.

Lárus var handtekinn af lögreglu í morgun. Myndir Róbert Reynisson

„Ég var ekki að mótmæla neinu. Ég var að viðhafa fullyrðingu, War is a Crime, eða stríð er glæpur,“ segir Lárus Páll Birgisson sem var handtekinn fyrir framan bandaríska sendiráðið í morgun. Lárus lét það ekki stöðva sig þó hann hafi á dögunum verið sakfelldur fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu fyrir utan sendiráðið í október á síðasta ári.

Þegar blaðamaður náði tali af Lárusi og spurði hann hvort hann hafi verið að mótmæla þvertók hann fyrir það. „Þetta er svona ný taktík. Mér sýnist ákæruvaldið hafa óbeit á mótmælendum þannig að ég ákvað að vera ekki að mótmæla neinu heldur benda á augljósa staðreynd.“

Lárus segist hafa drifið sig af stað í kjölfar birtingar Wikileaks á öllum gögnum Bandaríkjahers um stríðið í Afganistan. „Það var eiginlega nóg til að kynda bálið aftur. Allar svona fréttir fá mann til að hugsa að nú sé kominn tími til að fara af stað aftur,“ segir hann.

Sem fyrr segir var Lárus sakfelldur fyrir skemmstu fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu fyrir utan sendiráðið í október á síðasta ári. Honum var hinsvegar ekki gerð sérstök refsing í málinu. Fór það fyrir brjóstið á starfsmönnum sendiráðsins að hann var á gangstétt beint fyrir utan sendiráðið.

„Þú mátt hjóla og keyra barnavagninn þinn þarna en um leið og þú viðhefur tjáningu þá eru þeir voðalega viðkvæmir og vilja að maður fari fyrir utan hús hinum megin við götuna. En ég skil ekki af hverju ég á að vera að standa fyrir utan hús hjá ókunnugu fólki,“ segir Lárus sem var á leiðinni aftur að bandaríska sendiráðinu þegar blaðamaður kvaddi hann. „Já, ég er bara á leiðinni.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.