Íslenska ríkið hefur haft nægan tíma til að grípa inn í kaup Magma Energy á HS Orku en ekkert aðhafst. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, sagðist í morgun ekki skilja hvernig ríkið ætti að geta stöðvað kaupin.
„Ég skil alveg mismunandi sjónarmið fólks um orkumál og auðlindanýtingu. Ég ber fulla virðingu fyrir því en ég á erfitt með að skilja rangfærslur,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 í morgun.
Ásgeir segir röngum upplýsingum um málið viljandi haldið á lofti og það eigi hann erfitt með að skilja. „Ég á erfitt með að skilja af hverju ríkið greip ekki inn í þetta miklu, miklu fyrr. Þess vegna á síðasta ári eða síðasta vetur ef það hefði verið vilji ríkisins, sem ég helda ð hafi ekki verið,“ sagði Ásgeir á Rás 2.
Hann sagði að ef lögum yrði á einhvern hátt breytt eða gripið yrði inn í málið myndi fyrirtækið fara eftir því en bætti við:
„Ég átta mig ekki á því hvernig ríkið, sem þriðji aðili, getur stöðvað þennan samning, ég skil það ekki.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
