ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Fjárfestu í Milestone að undirlagi Glitnis

14:31 › 26. júlí 2010
Karl Wernersson. Skuldabréfa- og víxilútboð Milestone haustið 2007 gæti dregið dilk á eftir sér.

Karl Wernersson. Skuldabréfa- og víxilútboð Milestone haustið 2007 gæti dregið dilk á eftir sér.

Viðskiptavinir í einkabankaþjónustu Glitnis skoða nú réttarstöðu sína vegna fjárfestinga Glitnis í bréfum Milestone fyrir þeirra hönd. Glitnir lét viðskiptavini sína fjárfesta fyrir milljarða í skuldabréfum og víxlum Milestone þrátt fyrir að staða félagsins væri orðin slæm um haustið 2007. Einn viðskiptavinurinn segir að Glitnir hafi ráðlagt honum að fjárfesta í bréfunum.

Hluti þeirra fjárfesta sem töpuðu háum fjárhæðum á fjárfestingum í víxlum og skuldabréfum Milestone á haustmánuðum 2007 fjárfesti í bréfunum að undirlagi eignastýringardeildar Glitnis. 6,2 milljarðar króna söfnuðust í útboðinu. Starfsmenn einkabankaþjónustu Glitnis kynntu fjárfestingarkostinn fyrir fjárfestunum og slógu þeir til í kjölfarið. Í öðrum tilfellum, líkt og komið hefur fram í DV, voru viðskiptavinir einkabankaþjónustunnar ekki spurðir hvort fjárfesta ætti í bréfunum áður en starfsmenn Glitnis létu þá fjárfesta í þeim.

Allmargir þeirra einstaklinga sem lýsa milljóna kröfum í þrotabú Milestone voru viðskiptavinir einkabankaþjónustu Glitnis og fjárfestu í skuldabréfunum og víxlunum. Endurfjármagna þurfti Milestone á þessum tíma en félagið hafði gert árangurslausa leit að fjármagni hjá erlendum fjármálafyrirtækjum sumarið 2007. Því hefði átt að vera ljóst á þessum tíma að staða Milestone var ekki góð. Samt létu starfsmenn Glitnis viðskiptavini sína fjárfesta í bréfunum. Fjárfestingarnar námu allt frá nokkrum milljónum og upp í hundruð milljóna króna. Féð er tapað í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?