USS George Washington er risavaxið flugmóðurskip, 330 metra langt, og rúmlega 70 metrar á breidd og hæð. Reuters
Bandaríkin og Suður-Kórea hófu víðfeðmar heræfingar í dag. Alls 8.000 manna herlið frá báðum löndunum tekur þátt í æfingunni, og þar er nýst við 20 skip og 200 flugvélar. Þar á meðal er hið risavaxna flugmóðurskip, USS George Washington, sem er rúmlega 330 metrar á lengd.
Norður-Kórea hefur lengi eldað grátt silfur með hinum tveim, og nýlega var hinn fyrrnefndi sagður hafa sökkt herskipi Suður-Kóreumanna. Við þá árás drukknuðu 46 sjóliðar. Norður-Kórea hefur hótað kjarnaorkuárás og heilögu stríði gegn suðrinu vegna æfingarinnar.
Norður-Kóreumenn segja þetta vera undirbúning innrásar og hóta aðgerðum. Samskipti ríkjanna tveggja hafa ekki verið svona slæm síðan í Kóreustríðinu, sem geysaði á fimmta áratugi þessarar aldar.
Bandaríkjamenn segja að innrás í Norður-Kóreu standi ekki til, en segja heræfinguna vera skýr skilaboð til Norður-Kóreumanna um að láta af hérskárri hegðun sinni.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
