Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri fjárfestingarfélagsins Gnúps, var tekjuhæsti starfsmaður félagsins. Ekki er tekið fram í ársreikningi Gnúps frá árinu 2007 hvað hann var með í laun en ætla má að hann hafi verið töluvert hærri laun en meðallaun hjá Gnúpi sem námu tæpum 50 milljónum króna á ári. Því til stuðnings má nefna að Þórður Már var með 88 milljónir króna í laun árið 2006 þegar hann stýrði Straumi-Burðarási. Vel má áætla að Þórður hafi verið með meira en 100 milljónir króna í laun árið 2007.
Ofan á þessi laun bættist svo mikill rekstrarkostnaður vegna forstjórans en heimildir DV herma að meðal þess sem hann hafi stundað hafi verið þotuferðir hingað og þangað um heiminn. Slíkir þættir kunna að skýra að hluta af hverju rekstrarkostnaður Gnúps var.
Eins og fram hefur komið í DV nam launakostnaður félagsins samkvæmt ársreikningi 405 milljónum króna og „annar rekstrarkostnaður“ nam 170 milljónum króna tæpum.
Ítarlega er fjallað um Gnúp og ársreikninginn í DV í dag



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
