ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

100 milljóna húsnæði sem aldrei náðist að nota

06:00 › 24. júlí 2010
Húsnæði Gnúps í Borgartúni kostaði um 100 milljónir króna þegar það var innréttað árið 2007.  Skilanefnd Kaupþings notar húsnæðið í dag. Myndin er tekin í ársbyrjun 2008.

Húsnæði Gnúps í Borgartúni kostaði um 100 milljónir króna þegar það var innréttað árið 2007. Skilanefnd Kaupþings notar húsnæðið í dag. Myndin er tekin í ársbyrjun 2008. Mynd: Rósa Jóhannsdóttir

  •  Magnús Kristinsson og Þórður Már Jóhannesson.

    Magnús Kristinsson og Þórður Már Jóhannesson.Mynd: Rósa Jóhannsdóttir

Í ársreikningi Gnúps kemur fram að ofan á launakostnað upp á rúmlega 400 milljónir króna hafi bæst „annar rekstrarkostnaður“ sem nam nærri 170 milljónum króna. Engar frekari skýringar eru gefnar á þessum kostnaði. Laun níu starfsmanna og annar rekstrarkostnaður nam því samtals nærri 600 milljónum króna.

Eitt af því sem kann að skýra þennan háa rekstrarkostnað að hluta er að Gnúpur leigði um 1.000 fermetra skrifstofuhúsnæði á sjöundu hæð í Borgartúni 26 sem var innréttað fyrir nærri 100 milljónir króna. Gnúpur náði hins vegar aldrei að flytja inn í húsnæðið þar sem félagið fór á hliðina áður en af því gat orðið. Hæðina leigði félagið af fasteignafélagi Baugs, Þyrpingu. Fasteignamat hæðar Gnúps er tæpar 160 milljónir króna í dag.

Ítarlega er fjallað um ársreikning Gnúps í helgarblaði DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?