Laun og annar rekstrarkostnaður hjá Gnúpi námu samtals 570 milljónum króna árið 2007. Þórður Már Jóhannesson var forstjóri Gnúps og Magnús Kristinsson var annar af stærstu hluthöfum félagsins.
Fjárfestingafélagið Gnúpur greiddi starfsmönnum félagsins, sem voru samtals níu talsins, 405 milljónir króna í laun á árinu 2007. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem samþykktur var á stjórnarfundi félagsins um miðjan júlí. Skilanefnd Glitnis stýrir Gnúpi en bankinn tók félagið yfir í ársbyrjun 2008 vegna skuldastöðu þess. Eigendur félagsins voru Magnús og Birkir Kristinssynir, Kristinn Björnsson og Þórður Már Jóhannesson, sem jafnframt var forstjóri félagsins.
Í ársreikningum kemur fram að launa- og rekstrarkostnaður Gnúps var 570 milljónir króna árið 2007.
Gnúpur var einn stærsti hluthafinn í FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, og var það fyrsta stóra fjárfestingafélagið til að fara á hliðina í aðdraganda hrunsins. Það þjónaði því hagsmunum Glitnis að láta félagið ekki fara í þrot og því var það tekið yfir og eigum þess komið yfir til annarra aðila. Fyrir utan fjárfestinguna í FL Group átti Gnúpur einnig nokkurra prósenta hlut í Kaupþingi. Þetta voru helstu eignir félagsins.
Ársreikningi félagsins fyrir árið 2007 hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og hefur hann nú loks skilað sér en um það bil tveimur árum of seint. Skilanefnd Glitnis hefur undanfarið rannsakað hvort Glitnir hafi notað Gnúp í markaðsmisnotkun eftir að félagið var tekið yfir af bankanum í janúar 2008. Talið er að Glitnir hafi notað Gnúp sem eins konar ruslakistu og fært þangað hlutabréf í bankanum þegar hann var kominn að þeim lögbundnu mörkum sem hann mátti eiga - Fréttablaðið greindi fyrst fjölmiðla frá þessari rannsókn í maí síðastliðnum.
Tekið skal fram að þessi rannsókn tengist ekki fyrri eigendum Gnúps heldur aðeins meðferðinni á félaginu eftir að Glitnir hafði tekið það yfir.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
