Auðjöfurinn Björgólfur Thor Björgólfsson sást á göngu með nokkrum karlmönnum við Óðinstorg um klukkan hálf fimm í gær, miðvikudag, að sögn sjónarvotts sem vill ekki láta nafn síns getið. Björgólfur var að sögn sjónarvotts með barn í fanginu. Björgólfur er búsettur í Bretlandi.
Bílstjóri, sem þeir kölluðu Kjarra, ók burt á svörtum bíl sem leit út fyrir að vera fínn, að sögn sjónarvotts. Númerið á bílnum var HZ P00. Björgólfur hefur ekki sést á Íslandi í nokkurn tíma en ljóst er að nú reynir hann að friðmælast við almenning, en margir hverjir hugsa honum þegjandi þörfina í kjölfar hruns íslenska bankakerfisins og Ice Save deilunnar sem fylgdi í kjölfdarið. Í fréttatilkynningu sem Björgólfur sendi frá sér í morgun ítrekaði hann afsökunarbeiðni til þjóðarinnar.
Björgólfur og fjárfestingafélag hans Novator hafa gengið frá samkomulagi um heildaruppgjör við erlenda og innlenda lánadrottna. Þetta kom fram í tilkynningu frá Björgólfi nú í morgun. Skuldauppgjörið nemur tæpum tólf hundruð milljörðum króna, eða sem nemur tvöföldum fjárlögum íslenska ríkisins.
„Við hrun íslenska fjármálakerfisins haustið 2008 féllu á mig miklar persónulegar ábyrgðir vegna lánsviðskipta. Ég hef alltaf litið svo á þegar ég hef höndlað með háar fjárhæðir í eigin þágu að ég geti ekki gengið frá viðskiptunum án nokkurra persónulegra eftirmála ef og þegar allt fer á versta veg. Annað finnst mér óeðlilegt,“ segir Björgólfur í tilkynningunni. Ýmsar persónulegar eigur Björgólfs Thors ganga upp í skuldauppgjörið. Þar á meðal eru húseign í Reykjavík og sumarhús við Þingvelli.
Björgólfur Thor verður áfram hluthafi í félögum á borð við Actavis, Play, CCP og Verne Holding. Hann mun þó ekki fá greiddan arð af þessum eignarhlutum eða verðmæti, komi til sölu eignanna. Þess í stað munu fjármunirnir ganga til uppgjörs skuldanna.
„Starfsemi mín mun, hér eftir sem hingað til, einkennast af raunverulegum viðskiptum með raunverulegar eignir, en ekki málamyndaviðskipti með ímyndaðar eignir, sem því miður voru of ríkjandi í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum,“ segir Björgólfur. „Ég hef beðið Íslendinga afsökunar á augljósum mistökum mínum í aðdraganda hruns íslenska bankakerfisins. Þá afsökunarbeiðni ítreka ég.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
