Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings veitir viðtal eftir að hann var dæmdur í einangrun vegna rannsóknarhagsmuna.
„Ég legg til að refsingar taki mið af glæpnum. Menn sem ala með sér hugmyndafræði sem byggist á því að samfélagið sé „ekki til“ heldur sé bara „samansafn af einstaklingum“ ættu að vera skyldaðir til nokkurra ára samfélagsvinnu eftir tiltölulega stutta afplánun.“ Svo ritar Finnur Guðmundsson Olguson í pistli sem birtist í nýjasta tölublaði mánaðarritsins Rósta. Hann fagnar því að líklegt sé að glæpamönnum úr fjármálalífinu verði refsað en spyr hver besta refsingin sé.
Finnur veltir því upp hvernig réttast sé að refsa fólki, og heldur því fram að refsingar séu meira eða minna táknrænar, frekar en praktískar. „Þannig eru fangelsi ekki einungis tæki til frelsissviptingar heldur standa þau fyrir víti til varnaðar, eitthvað til að óttast, niðurlægingu,“ ritar Finnur.
Þá segist hann ekki vera að fylkja sér í lið með Jakobi Frímanni eða Bubba Morthens, en honum sé spurn hvort að venjuleg fangelsisvist sé nóg, hvort að með fangelsisvist sé raunverulegu höggi komið á mennina sem ollu raunverulegum skaða hér á landi. „Eigum við að láta okkur nægja að krefjast táknrænna bóta?“ Spyr Finnur.
Þá segir hann að þar sem að „þeir lögðu svo mikið upp úr því að skilja sig frá þeim sem minnst mega sín væri við hæfi að hvítflibbarnir fengju að vinna í þeirra þágu, mögulega í ræstingum á elliheimilum, á sambýlum fyrir fatlaða eða sem starfsmenn á frístundaheimilum.“
„Það sem skiptir máli er að það er ekkert niðurlægjandi eða táknrænt við þessa „refsingu“ heldur getum við mögulega gert úr þeim eitthvað nýtilegt með því að leyfa þeim að byggja upp samfélagið sem þeir lögðu svo mikið upp úr að hafna. Ennfremur er ekki úr vegi að þeir gætu dregið einhvern lærdóm af þessu,“ ritar Finnur.
Að lokum segir hann að ef farið verði þessa leið sé verið að fara hina praktísku leið frekar en þá táknrænu, án þess að afneita gildi þeirrar síðarnefndu.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“