Meirihluti svarenda í nýrri könnun MMR á afstöðu almennings til stjórnvalda og aðgerða stjórnvalda á Íslandi, telur að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu. Minna en þriðjungur telur að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Innan við sextán prósent eru sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MMR.
Rúmlega 70 prósent eru frekar eða mjög sammála því að að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu. Þeir sem styðja ríkisstjórnina eru þó síður á þeirri skoðun en þeir sem styðja hana ekki því 38,1 prósent þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru frekar eða mjög sammála því að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu borið saman við 87,1 prósent þeirra sem styðja hana ekki.
Einungis 15,8 prósent eru frekar eða mjög sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings meðan 64,1 prósent eru frekar eða mjög ósammála því. Ef litið er til stuðnings við ríkisstjórnina, þá eru 38,7 prósent þeirra sem segjast styðja ríkisstjórnina frekar eða mjög sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings borið saman við 5,7 prósent þeirra sem styðja hana ekki.
Um 30 prósent eða 29,3 prósent eru frekar eða mjög sammála því að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin en 45,2 prósent eru frekar eða mjög ósammála því.
Spurt var: „Hversu sammála eða ósammála ertu eftirfarandi fullyrðingum?“
a: Ríkisstjórnin leggur meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu
b: Tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um vaxtaviðmið vegna gengistryggðra lána voru sanngjörn
c: Alþingi stendur vörð um hagsmuni almennings
d: Stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin
Svarmöguleikar voru: Mjög sammála, frekar sammála, mjög ósammála, frekar ósammála og bæði og/hvorki né.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem tók afstöðu.
Fjöldi þeirra sem tók afstöðu til einstakra spurninga var eftirfarandi: a: 90,2%, b: 81,2%, c: 91,7% og d: 85,6%.
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR*
Könnunaraðferð: Netkönnun (þátttakendur valdir í síma)*
Svarfjöldi: 859 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 7.-12. júlí 2010



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
