Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hefur farið huldu höfði eftir að hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi og farbannsúrskurður yfir honum rann út í lok maí síðastliðinn.
Meðfylgjandi myndir náðust af forstjóranum fyrrverandi þar sem hann var á ferðinni í Reykjavík. Hreiðar er sem sem kunnugt er búsettur í Lúxemborg þessa dagana eins og svo margir meðreiðarsveinar hans í viðskiptalífinu.
Af Kaupþingsrannsókninni er það annars að frétta að embætti sérstaks saksóknara bíður nú eftir þeim gögnum sem fengin voru með húsleitum í Lúxemborg í tengslum við rannsóknina. Yfirvöld í Lúxemborg þurfa nú að vega og meta hvort embætti Ólafs Haukssonar eigi að fá gögnin send eða ekki. Sérstakur rannsóknardómari hefur verið skipaður þar í landi til að fara yfir það mikla magn gagna sem húsleitin skilaði. Hreiðar Már og Kaupþingsmenn hafa gert athugasemdir við hvernig hald var lagt á gögnin og þarf rannsóknardómarinn að taka tillit til þeirra athugasemda áður en hann ákveður hvort gögnin verði send hingað til lands eða ekki. Hugsanlegt er að embætti sérstaks saksóknara fái ekki gögnin frá Lúx fyrr en í fyrsta lagi í haust ef af verður.
Rannsóknin á Hreiðari Má og félögum heldur samt áfram hér á landi.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
