ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Þráinn fær ekki pólsku tillöguna tekna fyrir: „Ég mæti furðulegu áhugleysi“

Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
07:00 › 17. júlí 2010
Þráinn Bertelssonvill skerða laun þeirra sem taldir eru hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi að mati rannsóknarnefndar Alþingis. Að þessu leyti má segja að hann horfi til Póllands.

Þráinn Bertelssonvill skerða laun þeirra sem taldir eru hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi að mati rannsóknarnefndar Alþingis. Að þessu leyti má segja að hann horfi til Póllands.

„Ég fæ hana ekki tekna fyrir,“ segir Þráinn Bertelsson þingmaður en þingsályktunartillaga hans sem gengur út á það að skerða eftirlaun sjömenninganna, sem taldir eru hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hefur verið lögð fyrir Alþingi. Þráinn segir að tillagan gangi út á að forseta Alþingis eða ríkisstjórninni verði falið að semja, að pólskri fyrirmynd, frumvarp að lögum um endurskoðun eftirlauna þeirra sem sagðir eru hafa sýnt vanrækslu í starfi. Hann hefur ekki fengið þessa tillögu tekna fyrir á yfirstandandi þingi.

Þessi leið er sem fyrr segir byggð á pólskri fyrirmynd en Pólverjar tóku sig til og skertu lífeyri Wojciech Jaruzelski hershöfðingjsa og fjörutíu þúsund annarra karla og kvenna sem unnu fyrir pólsku leyniþjónustuna. „Pólverjar færðu eftirlaun þeirra niður í það sem eðlilegt er og sanngjarnt. Svo að þetta frá minni hálfu snýst um sanngirni og heilbrigða skynsemi og að koma í veg fyrir að menn dragi sér fé frá ríkinu,“ segir Þráinn sem segir þetta ekki vera hefndarráðstöfun heldur ráðstöfun til að koma í veg fyrir að menn hafi beinlínis hag af því að valda ríkinu tjóni.

„Ég mæti furðulegu áhugaleysi hjá forseta þingsins og það bendir til þess að ríkisstjórnin, eða að minnsta kosti Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, hafi ekki áhuga heldur,“ segir Þráinn.
Þráinn segir það breyta sig litlu þó hann hafi mætt áhugaleysi því hann ætlar að leggja þingályktunartillöguna aftur fyrir þegar þingið hefst næsta haust.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?