Björk boðar til blaðamannafundar í Norræna húsinu í Reykjavík næstkomandi mánudag, þann 19. júlí, klukkan fjögur. Þar verður fyrirhuguð undirskriftasöfnun kynnt fyrir fjölmiðlum vegna áskorunar um orkuauðlindir Íslendinga. Áskoruninni verður ýtt úr vör með söng en Björk mun flytja nokkur laga sinna í nýrri útgáfu.
Þann 13. júlí síðastliðinn sendu Björk Guðmundsdóttir, tónlistarkona, Jón Þórisson, arkítekt og aðstoðarmaður Evu Joly og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, Umboðsmanni Alþingis formlega og ítarlega ábendingu um að taka sölu- og samningaferli í Magmamálinu til gagngerrar endurskoðunar og að gæta hagsmuna alls almennings, þar sem málið sé gríðarlegt hagsmunamál og þar sem salan á HS Orku til erlends einkaaðila sé prófsteinn á orkuauðlindastefnu framtíðarinnar.,
Björk birti jafnframt knýjandi spurningar á ensku og íslensku á alþjóðlegum vef sínum, sem allar varða auðlindir og lýðræði á Íslandi og hún hvetur til gagnsærrar og opinnar umræðu.
Í fréttatilkynningu frá aðstandendum er ítrekað að á næstu dögum sé áætlað sé að samþykkja endanlega samninginn um kaup Magma Energy Sweden AB á HS Orku, sem muni leiða til þess að fyrrnefnda fyrirtækið „fær einkarétt á nýtingu dýrmætra og mikilvægra auðlinda okkar til næstu 65 ára með framlengingarmöguleika til annarra 65 ára!“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
