Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, gerir athugasemd vegna ummæla Silju Báru Ómarsdóttur í hádegisútvarpi RÚV frá Unnu G. Kristjánsdóttur. Í athugasemdunum segir Unnur meðal annars að hún hafi skipt um skoðun á Magmamálinu eftir að hafa heyrt rök annara, Silja Bára og Björk hafi hinsvegar ekki hlustað á þau rök. „Afstaða Silju Báru og Bjarkar í þessu máli var ljós frá upphafi og höfðu lögfræðiálit og rannsókn málsins engin áhrif á þær – gagnstætt mér sem hlustaði á rök annarra líka,“ segir Unnur.
Fram kemur í athugasemd Unnar að hún hafi kannað fjármál Magma Energy Sweden AB. Segir hún að fyrirtækið sé með sjálfstæðan fjárhag og að allir fjármunir og skuldbindingar gagnvart HS Orku hf fari í gegnum reikninga þess eins og vera ber í slíku fyrirtæki. Hún tekur fram að hún hafi sérstaklega fengið leyfi til að birta þær upplýsingar, og tekur fram að nefnd um erlenda fjárfestingu hefur ekki stöðu rannsóknaraðila.
Unnur talar um vanhæfi nefndarmanna, en tiltekur þó engin nöfn og beinir orðum sínum ekki að neinum. „Starf í nefndinni krefst þess af nefndarmönnum að leggja til hliðar stjórnmálaskoðanir og gæta hlutleysis og fara að lögum hversu andstæð sem þau kunna að vera því sem hjartað segir. Að tjá sig opinberlega um málsaðila eða eða viðfangsefni nefndarinnar öðruvísi en á hlutlægan hátt veldur vanhæfi nefndarmanna,“ segir Unnur.
Málsaðilar geta gert athugasemd um hæfi einstakra nefndarmanna, en ef einhverjar slíkar athugasemdir berast nefndinni verður það tekið fyrir á næsta fundi hennar.
Yfirlýsingin í heild sinni
Silja Bára fulltrúi VG í nefnd um erlenda fjárfestingu vitnar í einkasamtöl okkar í vetur þar sem ég beindi því til hennar að sitja hjá við afgreiðslu svokallaðs Magmamáls í nefnd um erlenda fjárfestingu. Eins og vera ber sagði ég henni þá skoðun mína að afstaða hennar stæðist ekki lög og mat sérfræðinga. Þá ræddi ég einnig um að þetta mál hefði áhrif á stjórnarsamstarf ríkisstjórnarflokkanna sem henni var reyndar fullljóst sjálfri. Ég hélt að hún væri ekki viðkvæm fyrir þessu enda kennir hún alþjóðastjórnmál í Háskóla Íslands. En mér þykir leitt að hafa valdið henni óþægingum með þessari rökræðu minni.
Afstaða Silju Báru og Bjarkar í þessu máli var ljós frá upphafi og höfðu lögfræðiálit og rannsókn málsins engin áhrif á þær – gagnstætt mér sem hlustaði á rök annarra líka. Ég hef allan tímann borið virðingu fyrir skoðunum þeirra á málinu og tel mig hafa sýnt það í hvívetna enda aflaði ég gagna og setti fram mjög gagnrýnar spurningar til sérfræðinganna í gegnum allt vinnuferlið sem stóð frá því í sept. fram í mars 2010.
Vegna yfirlýsinga Silju Báru í sjónvarpsfréttum í gær vil ég undirstrika að allra þeirra gagna sem við þurftum var aflað og einnig rannsakaði ég nokkra fleiri þætti en fram koma í greinargerðunum. M.a. hef ég haft upplýsingar um að Magma Sweden AB starfar sem fjárfestingafélag, með sjálfstæðan fjárhag og að allir fjármunir og skuldbindingar gagnvart HS Orku hf fara í gegnum reikninga þess eins og vera ber í slíku fyrirtæki. Tekið skal fram að ég hef leyfi hlutaðeigandi til að segja frá þess. Tekið skal fram að nefnd um erlenda fjárfestingu hefur ekki stöðu rannsóknaraðila.
Starf í nefndinni krefst þess af nefndarmönnum að leggja til hliðar stjórnmálaskoðanir og gæta hlutleysis og fara að lögum hversu andstæð sem þau kunna að vera því sem hjartað segir. Að tjá sig opinberlega um málsaðila eða eða viðfangsefni nefndarinnar öðruvísi en á hlutlægan hátt veldur vanhæfi nefndarmanna.
Ferli þessa máls hófst fyrir réttu ári síðan, síðast skipti hlutafé í HS Orku um hendur í maí sl. Stjórnmálamenn hefðu á þessu tíma getað breytt þeim. Það gerðu þeir ekki og lögin eru enn í gildi og verða a.m.k. fram á haust.
Á því ber nefnd um erlenda fjárfestingu ekki ábyrgð.






Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði