ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Framsýn um AGS: „Höfum það hugfast að sært dýr bítur“

Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is
08:59 › 15. júlí 2010
Aðalsteinn Baldursson, Verkalýðsfélaginu Framsýn.

Aðalsteinn Baldursson, Verkalýðsfélaginu Framsýn.

Framsýn, stéttarfélag varar við tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem séttarfélagið segir miða að því að auka enn frekar á skattbyrði fólks á Íslandi með hækkun tekjuskatts og virðisaukaskatts á matvæli. Tillögurnar séu lagðar fram á sama tíma og atvinnuleysi, skattar, almennar álögur og verðlag er í sögulegu hámarki. „Höfum það hugfast að sært dýr bítur,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram í tilkynningu að samfara háum álögum og atvinnuleysi hafi kaupmáttur launa hrunið hjá verkafólki. „Það er því alveg ljóst að almenningur á Íslandi sem býr við kröpp kjör hefur ekki burði til að taka á sig frekari byrðar. Það ætti hver heilvita maður að sjá,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Þá kallar Framsýn eftir ábyrgð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í uppbyggingu landsins. Tillögur AGS eigi að miða að endurreisn efnahagslífsins í stað tillagna um óhóflegar álögur sem að stórum hluta muni færa þjóðina marga áratugi aftur í lífsgæðum.

Framsýn hvetur stjórnvöld til að hunsa hugmyndir sjóðsins og koma þannig í veg fyrir endanlegt hrun heimilanna í landinu. Þess í stað sé mikilvægt að stjórnvöld standi við gefin loforð um norræna velferðarstjórn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.