ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Ætlar að synda yfir Ermarsundið, hjóla til Indlands og klífa Everest

Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is
19:19 › 14. júlí 2010
Wittmack.

Wittmack.

  • Everest.

    Everest.

Bandaríkjamaðurinn Charlie Wittmack, 36 ára, ætlar að reyna við einhverja erfiðustu líkamlegu áskorun sem um getur. Hann ætlar að synda niður Thamesánna í Lundúnum, út á Ermasundið og yfir það til Frakklands. Og það er aðeins blábyrjunin á þríþrautinni!

Wittmack ætlar því næst að hjóla til Kalkútta á Indlandi, vegalengdin er um 8000 kílómetrar. Næst ætlar hann að hlaupa alla leið upp á tind Everestfjalls.

Wittmack ætlar að vera kominn til landamæra Kína og Kirgistan í lok október og fara þaðan upp á tind Everest hinn 25. maí á næsta ári.

Hann syndir nú í Thames og nær tíu til tuttugu kílómetrum á dag. „Stundum syndi ég reyndar ekki, heldur geng, því fljótið er svo grunnt. Það er frekar sárt því ég stíg oft á grjóthnullunga,“ segir Charlie Wittmack.

Wittmack er vanur maður. Hann hefur áður synt yfir Ermarsundið og klifið Everest. Hann starfar sem lögmaður í Iowafylki í Bandaríkjunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.