ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Björgólfur á mótorhjólahátíð: Gisti í tjaldi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:00 › 1. júlí 2010
Engin lúxushótel virðast hafa verið pöntuð fyrir milljarðamæringinn í ferðinni til Bandaríkjanna heldur virðist Björgólfur Thor hafa látið sér nægja að gista í tjaldi. Hann sést hér í tjaldinu ásamt samferðamanni sínum sem virðist vera Orri Hauksson.

Engin lúxushótel virðast hafa verið pöntuð fyrir milljarðamæringinn í ferðinni til Bandaríkjanna heldur virðist Björgólfur Thor hafa látið sér nægja að gista í tjaldi. Hann sést hér í tjaldinu ásamt samferðamanni sínum sem virðist vera Orri Hauksson.

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir fór á mótorhjólahátíð í Sturgis í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum í ágúst í fyrra. Þetta sýnir ljósmyndasería af fjárfestinum sem DV hefur undir höndum. Myndaserían sýnir Björgólf Thor í áður óþekktu ljósi, klæddan í þægileg hversdagsföt, með alls kyns skartgripi og skraut á sér auk þess sem hann sést liggjandi í tjaldi með sælusvip. Björgólfur virðist því vera töluvert alþýðlegri en almennt hefur verið talið.

Með Björgólfi Thor í för voru tveir af starfsmönnum hans sem hafa unnið fyrir hönd fjárfestisins í tengslum við eignarhlut hans í bandaríska mótorhjólafyrirtækinu Indian. Starfsmennirnir heita Orri Hauksson, sem er fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar og stjórnarformaður Skjás eins, og Sigurður Ólafsson, sem lengi hefur unnið fyrir Björgólf Thor.

Áhugaverðasta myndin er sennilega myndin af Björgólfi í tjaldinu þar sem hann liggur og lygnir aftur augunum með sælusvip á andlitinu. Flestir hefðu líklega haldið að Björgólfur Thor gisti aldrei í tjaldi heldur aðeins á fínum hótelum með herbergisþjónustu og handklæðahitara. En honum virðist líka það vel að kúldrast á vindsæng á jörðinni undir þunnum tjaldhimni í raka eða stækju.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?