Jón Örn Loðmfjörð segir þetta vera ljóðabók um skýrsluna en um leið einhverskonar rannsóknarskýrsla um ljóðabók. Mynd/Ivan Þór Ólafsson
Ljóðskáldið Jón Örn Loðmfjörð hefur gefið út ljóðabókina Gengismunur en í henni eru ljóð sem eru unnin úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008. Við vinnslu ljóðanna notaðist Jón Örn við ljóðavél sem hann þróaði sjálfur, en það er tölvuforrit sem býr til ljóð.
Jón Örn segir þetta vera ljóðabók um skýrsluna en um leið einhverskonar rannsóknarskýrsla um ljóðabók. „Texti sem er kokkaður upp úr hráefni skýrslunnar en líka látinn apa eftir formi og stíl ýmsra þekktra höfunda og ljóða.“
En þegar Jón Örn er spurður út í rannsóknarskýrsluna sjálfa hefur hann þetta að segja: „Ég rakst á lélega bók um ameríska stefnumótamenningu um daginn. Hún hófst á „margt hefur breyst í amerískri deitmenningu eftir ellefta september.“ Svo var það ekkert rökstutt meira. Stundum finnst mér eins og það sem einkenni Nýja Ísland sé þetta inngangsstef að öllu. Uppgjör við 2007. Svona eins og til að minna okkur og aðra að það séu nýir tímar - frekar en að við trúum því að það séu nýir tímar. Skýrslan er einmitt einhverskonar greining á 2007 en alls ekki ein og sér skýr krafa um breytingar.“
Höfundaforlagið Nýhil gefur bókina út. Á heimasíðu forlagsins segir að Nýhil hafi þann tilgang að stuðla að vexti og viðgangi nýsköpunar í íslenskum bókmenntum. Nýhil er sjálfseignarstofnun undir beinni stjórn ungra, starfandi rithöfunda, rekin án arðsemismarkmiða. Nýhil hefur sent frá sér fréttatilkynningu í tilefni af útkomu bókarinnar:
„Óveðrinu hefur slotað, sólin er komin upp og Nýhil kynnir stolt og sjálfumglatt sem endranær:
GENGISMUNUR eftir JÓN ÖRN LOÐMFJÖRÐ er ljóðabók um rannsóknarskýrslu, rannsóknarskýrsla um ljóðabók, ljóðabók um ljóðabók og rannsóknarskýrsla um rannsóknarskýrslu, kokkuð úr hráefni SKÝRSLUNNAR sem við óttumst öll og elskum af vélum sem Jón Örn Loðmfjörð skrifaði, forritaði, tamdi og þjálfaði sérstaklega til þessa verks.
í skuldaaukningu hlutabréfanna
í mögulegri vaxtagreiðslu veðanna
í áhrifalausum seðlabönkum
vaka milljarðar
og upphæðin aumkvast
yfir þínum krónum
Skýrslan er ekki bara eitt merkasta rit þjóðarinnar á síðari tímum heldur einn af fáum raunverulega fögrum viðburðum til að eiga sér stað á Íslandi í langan tíma. Skýrslan er allt að því óumdeild; eina fólkið sem ekki fagnar Skýrslunni er það sem fær á baukinn í Skýrslunni. Skýrslan er sólin, sjóndeildarhringurinn, frumkraftar alheimsins, bók bókanna, ný dögun, sú sem slekkur þorstana, eldana og útskúfar illum öndum – til Skýrslunnar er vísað þegar við ofurefli er að etja:
„Hérna, hafðu þetta, Skýrslan segir að þú sért slefandi mútuþægur bavíani í fjórtán ættliði og níu bindum! Skák og mát!“
Leiðbeinandi útsöluverð er tíu sálir, tólf handtökuskipanir og tuttugu fjandsamlegar yfirtökur. Sá yðar sem syndlaus er kaupi fyrsta eintakið (í öllum helstu bókaverslunum).“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
