ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Persónuleg meðmæli áhrifaríkust

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:45 › 8. júní 2010
Fólk treystir best persónulegum ummælum fólks þegar það leitar sér upplýsinga um vöru og þjónustu.

Fólk treystir best persónulegum ummælum fólks þegar það leitar sér upplýsinga um vöru og þjónustu.

Samkvæmt nýrri könnun MMR þá treystir fólk best persónulegum meðmælum og umfjöllun á netinu þegar þeir leita upplýsinga um vöru og þjónustu.

Um 80 prósent aðspurðra sögðust helst treysta meðmælum fólks sem það þekkir þegar það leitar sér upplýsinga um vörur og þjónustu. Þar á eftir komu heimasíður fyrirtækja og umsagnir neytenda á internetinu.

Fæstir sögðust þó treysta auglýsingum á internetinu og sms auglýsingum.

Könnunin fór fram dagana 4.-10. maí og henni svöruðu 976 einstaklingar á aldrinum 18- 67 ára.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?