Þúsundir mótmæltu í janúar 2009, en níu hafa verið ákærðir fyrir „árás á Alþingi.“ Mynd/María einarsdóttir
„Reykjavík níu“ eins og dómsmálið gegn nímenningunum er kallað hefur vakið athygli Attac samtakanna í Noregi. Á heimasíðu samtakanna er birt umfjöllun um málið og er þar meðal annars viðtal við Sólveigu Jónsdóttur, en hún er ein þeirra ákærðu.
Í umfjölluninni kemur meðal annars fram að þúsundir Íslendinga hafi mótmælt fyrir framan Alþingi í Janúarbyltingunni og truflað störf Alþingis, en níu séu nú ákærðir fyrir „árás á Alþingi.“ Þá segir Sólveig einnig að hún telji að nímenningarnir hafi verið valdir úr hópi fólks til þess að gefa fordæmi fyrir aðra.
Þá er fjallað um undirskriftalista sem yfir 400 manns hafa skrifað undir þar sem þeir lýsa því yfir að hafa einnig gert „árás á Alþingi.“ Verði nímenningarnir fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér eins til sextán ára fangelsi.
Greinina má lesa í heild sinni hér



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
