Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr ræddu við fjölmiðla uppi á húsþaki í Æsufelli í Breiðholti. Jón sagðist ætla að standa við loforðið um að fá ísbjörn í húsdýragarðinn. Mynd/Sigtryggur Ari
„Hugmyndin er semsagt sú að næst þegar ísbjörn rekur á land þá verði hann deyfður í stað þess að verða skotinn til bana,“ segir Gaukur Úlfarsson fjölmiðlafulltrúi Besta flokksins. Hann segir að í kjölfarið sé ætlunin að færa ísbjörninn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem hann getur fenguð almennilega aðhlynningu. Eftir hálft ár eða svo yrði ísbirninum svo sleppt aftur og sendur til sinna gömlu heimkynna.
Gaukur segir því að öll umræða um að kosningaloforð Besta flokksins um að fá ísbjörn í húsdýragarðinn muni kosta meira en 250 milljónir sé á villigötum. Verkefnið sem Besti flokkurinn stefnir að sé mun ódýrara. „Þetta er bara dýr í útrýmingarhættu og okkur finnst algjörlega óþarfi að skjóta næsta ísbjörn sem rekur hér á land,“ segir hann.
Gaukur tekur undir að hér yrði um eins konar meðferð að ræða, enda oft sem ísbirnir sem hingað koma séu orðnir örmagna af hungri og þreytu. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fengi ísbjörninn nóg að borða, og góða aðhlynningu, áður en honum yrði sleppt. Verkefnið yrði þar með annað og meira en skemmtunin ein saman, heldur einnig stuðningur við dýr í útrýmingarhættu. Óvíst er hinsvegar hvort flokkurinn neyðist til að svíkja kosningaloforðið ef engan ísbjörn rekur á land á næstu fjórum árum.
Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri formaður Samtaka sjálfstæðra skóla, benti á í fréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld að fyrir ísbjarnarfé væri til hægt að sjá 160 börnum fæddum 2009 fyrir leikskólaplássi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þá sagði Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins að það myndi kosta miklu meira en 250 milljónir króna að koma ísbirni fyrir í Húsdýragarðinum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna