ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Hundruð deyja í hitabylgju

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:35 › 4. júní 2010
Hitabylgja gengur yfir norðurhluta Indlands með skelfilegum afleiðingum.

Hitabylgja gengur yfir norðurhluta Indlands með skelfilegum afleiðingum. AFP

Mörg hundruð manns hafa látið lífið í hitabylgju á Norður Indlandi undanfarna daga. Hitinn hefur farið upp í 50 gráður á sumum stöðum og samkvæmt mælingum mun þetta vera heitasta sumar á Norður Indlandi frá því mælingar hófust undir lok nítjándu aldar.

Búist er við áframhaldandi mannfalli, þar sem hitinn verður áfram gríðarlega hár í landinu. Meira en 100 manns létust af völdum hitans í Gujarat fylkinu í síðustu viku, þar sem hitinn náði mest 48,5 gráðum í skugga. Í Maharashtra hafa 90 manns látist og í Rajasthan haf 35 manns látist. Í nokkrum öðrum fylkjum hefur verið mikið álag á sjúkrahúsum vegna hitabylgjunnar. Um 300 manns á dag hafa lagst inn á spítala vegna ofhitnunar og tengdra veikinda. Indverskir embættismenn hafa sagt þessar tölur vera aðeins brot af vandamálinu, því miklu fleiri liggi fárveikir af völdum hitans, en eigi ekki möguleika á því að fá læknisþjónustu.

Bændur hafa einnig orðið fyrir miklum búsefjum, þar sem hitabylgjan hefur drepið stóran hluta bústofnsins á sumum býlum. „Vegna hitans hafa vötn þornað upp og fyrir vikið hafa mörg dýr ofþornað,“ segir Neeraj Srivastava, sem berst fyrir því að vernda lífríkið á þessum svæðium. Eftir þurkinn á síðasta ári eru indverskir bændur orðnir langeygir eftir því að monsún-rigningatímabilið hefjist. Þá ná bændur að veita vatni á flest tún á svæðinu.

Óvenju heitt hefur verið á Indlandi síðustu mánuði, þannig var meðalhiti í mars og apríl heitari en hann hafði verið á þessum árstíma í hundrað ár.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?