ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Guðlaugur Þór birtir styrkjalistann sinn

19:14 › 4. júní 2010
Listinn sem að margir héldu að aldrei yrði birtur. Guðlaugur fékk tvær milljónir króna frá Fons, félags Pálma Haraldssonar,

Listinn sem að margir héldu að aldrei yrði birtur. Guðlaugur fékk tvær milljónir króna frá Fons, félags Pálma Haraldssonar,

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokkins, hefur látið undan þrýstingi og birt lista yfir þá aðila og fyrirtæki sem styrktu hann fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík árið 2006. Guðlaugur nafngreinir þó ekki alla.

Guðlaugur greindi nýlega frá því að hann myndi kanna hvort þeir aðilar sem styrku hann samþykktu að verða nafngreindir.

„Sumir hafa veitt samþykki sitt en aðrir ekki og mun ég virða það eins og ég hef áður sagt. Ég birti nöfn þeirra lögaðila sem eru gjaldþrota án þess að tala við viðkomandi forystumenn eða slitastjórn en ef viðkomandi aðili er látinn birti ég ekki nafn hans eða fyrirtækis hans. Nokkra aðila náði ég ekki í. Að auki talaði ég við einstaklinga og fór fram á leyfi til að birta nöfn þeirra en það hafa aðrir frambjóðendur ekki gert,“ segir Guðlaugur í yfirlýsingu sinni til fjölmiðla nú klukkan 19.

Guðlaugur var styrkjakóngurinn í íslenskum stjórnmálum þegar hann fékk tæpar 25 milljónir króna í styrki fyrir prófkjörið 2006. Guðlaugur gerir grein fyrir þeim aðilum sem styrktu hann um sem nemur tæplega 16 milljónum króna. 16 aðilar, einstaklingar og fyrirtæki, eru ekki nafngreindir en samtals styrktu þeir þingmanninn um 8.975.000 krónur.

DV hafði áður greint frá því að Guðlaugur hefði þegið styrki frá FL Group og Baugi fyrir samtals 4 milljónir króna en nú er ljóst að Fons, félag Pálma Haraldssonar, styrkti hann um tvær milljónir króna sömuleiðis.

Þeir sem styrktu Guðlaug Þór:

Baugur Group ehf - 2.000.000
FL Group - 2.000.000
Fons hf - 2.000.000

Landsbanki Íslands - 1.500.000
Austursel ehf - 1.500.000
Atorka Group hf - 1.000.000
Kaupþing banki hf - 1.000.000

Milestone ehf - 750.000
HF Eimskipafélagið - 500.000
Sigurður Bollason - 500.000
Þóra Guðmundsdóttir - 500.000

Bláa Lónið - 400.000
Brim hf - 300.000
Intrum á Íslandi - 300.000

Actavis Group hf -250.000
Bjarni Ingvar Árnason - 250.000
Borgarverk ehf - 250.000

Guðmundur Kristjánsson- 200.000
Gylfi og Gunnar - 200.000
Tékk Kristall - 200.000

Vínlandsleið ehf - 150.000
Örninn hjól ehf - 75.000
VBS fjárfestingabanki - 30.000

Samtals: 15.855.000



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?