Björgólfur: ,,Vissi ekkert um Icesave fyrr en það var auglýst"

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir segist ekkert hafa vitað um Icesave-reikninga Landsbankans fyrr en þeir voru auglýstir í Bretlandi. Hann segist ekkert hafa komið að því að ákveða að bjóða upp á reikningana. Björgólfur Thor er í ítarlegu viðtali í helgarblaði DV.

Spurningin sem DV lagði fyrir Björgólfs um Icesave var svohljóðandi:

DV: Hver var aðkoma þín að Icesave? Komstu að þeirri ákvörðun að ákveða að byrja að bjóða upp á Icesave-reikningana? Telur þú Icesave-reikningana hafa verið mistök þegar þú lítur til baka? Hver var aðahygmyndafræðingur Icesave? Var það Sigurjón?

Svar fjárfestisins var á eftirfarandi leið:

BTB: ,,Ég vissi ekkert um Icesave fyrr en það var auglýst í Bretlandi, enda kom ég ekkert að rekstri bankans. Mér var ekki kunnugt um hver var aðalhugmyndafræðingurinn að Icesave. Eftir því sem mér hefur verið síðar sagt kynntu bankastjórar Landsbankans málið fyrir bankaráði tveimur dögum áður en bankinn tók að taka við innlánum í Bretlandi."

DV spurði Björgólf jafnframt út í hvort hann teldi að mistök hefðu verið gerð við einkavæðingu ríkisbankanna og hvort þeim Samson mönnum hefði verið hyglað í einkavæðingunni:

DV: Telur þú að gerð hafi verið mistök við einkavæðingu bankana, meðal annars með því að falla frá því að hafa dreifðara eignarhald á bönkunum? Þetta er ein af niðurstöðunum í skýrslunni um einkavæðinguna. Telur þú að ykkur Samson-mönnum hafi verið hyglað í einkavæðingunni?

Björgólfur svaraði þessari spurningu á þá leið að hann teldi að þeim feðgum og Magnúsi Þorsteinssyni hefði ekki verið hyglað:

BTB: ,,Á sínum tíma leit ég á kaupin á hlut ríkisins í Landsbankanum sem áhugavert viðskiptatækifæri. Víða í Evrópu höfðu ríkisfyrirtæki verið seld til kjölfestufjárfesta og var reynslan af því talin góð. Ég var kjölfestufjárfestir í einkavæðingu á lyfjafyrirtæki og símafyrirtæki Búlgaríu sem heppnaðist vel og eru þau fyrirtæki enn í miklum blóma. Okkur Samson mönnum var ekki hyglað að mínum dómi. Við gerðum tilboð í Landsbankann en höfðum ekkert með það að gera hvernig ríkið komst að sinni niðurstöðu. Eftir á að hyggja finnst mér við frekar hafa verið notaðir sem einhverskonar hlaupahérar til að koma Búnaðarbankanum í hendur manna sem fyrir voru í íslensku athafnalífi. Sú einkavæðing lagði grunninn að yfirtöku Kaupþings á Búnaðarbankanum en í mínum huga var sá samrunni ein helsta orsök þess að bankakerfið á Íslandi óx eins hratt og raun varð á."


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.