ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Björgólfur Thor á mótorhjólahátíð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:00 › 30. júní 2010
Björgólfur Thor sést hér með Orra Haukssyni þar sem þeir viðskiptafélagarnir tvímenna á fallegu Indian-mótorhjóli í Bandaríkjunum í ágúst í fyrra. Björgólfur Thor á hlut í mótorhjólaframleiðandanum og Orri hefur unnið fyrir félagið fyrir hönd fjárfestisins.

Björgólfur Thor sést hér með Orra Haukssyni þar sem þeir viðskiptafélagarnir tvímenna á fallegu Indian-mótorhjóli í Bandaríkjunum í ágúst í fyrra. Björgólfur Thor á hlut í mótorhjólaframleiðandanum og Orri hefur unnið fyrir félagið fyrir hönd fjárfestisins.

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir fór á mótorhjólahátíð í bænum Sturgis í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum í ágúst í fyrra. Þetta sýnir ljósmyndasería af fjárfestinum sem DV hefur undir höndum. Myndaserían sýnir Björgólf Thor í áður óþekktu ljósi, klæddan í þægileg hversdagsföt, með alls kyns skartgripi og skraut á sér auk þess sem hann sést liggjandi í tjaldi með sælusvip. Björgólfur virðist því vera töluvert alþýðlegri en almennt hefur verið talið.

Með Björgólfi Thor í för voru tveir af starfsmönnum hans sem hafa unnið fyrir hönd fjárfestisins í tengslum við eignarhlut hans í bandaríska mótorhjólafyrirtækinu Indian. Starfsmennirnir heita Orri Hauksson, sem er fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar og stjórnarformaður Skjás eins, og Sigurður Ólafsson, sem lengi hefur unnið fyrir Björgólf Thor.

Björgólfur keypti á sínum tíma hlut í Indian-fyrirtækinu sem er með höfuðstöðvar í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Mótorhjólafyrirtækið er að mestu í eigu breska verðbréfafyrirtækisins Stellican Limited sem er með höfuðstöðvar í London. Indian framleiðir lúxusmótorhjól.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?