Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Mál níu einstaklinga sem ákærðir hafa verið fyrir að ráðast gegn Alþingi í desember 2008 var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan hálf níu í morgun. Sem fyrr var töluverður fjöldi fólks mættur á svæðið til að sýna hinum ákærðu stuðning, þó þeir hafi verið færri en þegar málið var síðast tekið fyrir þann tólfta maí síðastliðinn.
Lögreglan var með einhvern viðbúnað í héraðsdómi í morgun en samkvæmt upplýsingum DV hefur allt farið vel fram. Líkt og þann tólfta maí síðastliðinn komust færri að en vildu í sal 101 í héraðsdómi í morgun og þegar ekki komust fleiri að var dyrunum að salnum lokað.
Allir þeir sem hafa verið ákærðir neita sök.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 






„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
