ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Haraldur Flosi: Kynntist fólkinu í Besta flokknum í MH

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
12:06 › 24. júní 2010
Haraldur Flosi Tryggvason kynntist fólkinu í Besta flokknum í MH.

Haraldur Flosi Tryggvason kynntist fólkinu í Besta flokknum í MH.

Haraldur Flosi tryggvason nýkjörinn stjórnarformaður Orkuveitunnar kynntist fólkinu í Besta flokknum þegar hann var að spila í hljómsveit í gamla daga. Þá segir hann að í flokknum séu líka margir gamlir skólabræður úr MH. Haraldur starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lýsingar og var sem slíkur einn þeirra sem bar ábyrgð á því að Lýsing skyldi innheimta ólögleg lán.

Haraldur hóf að skipta sér af stjórnmálum í kringum búsáhaldabyltinguna. „Ég hóf pólitísk afskipti um það leyti sem aðrir voru að berja pönnur niðri í bæ. Það var einhver vakning í þjóðfélagsmálum og það átti ekki alveg við mig að berja pönnur, þannig að ég gekk til liðs við Samfylkinguna. Þar var ég kjörinn varamaður í stjórn Samfylkingarfélagins í Reykjavík en tók svo sæti í stjórn frjálslyndra jafnaðarmanna. Síðan þekki ég vini mína í Besta flokknum frá því í gamla daga, margir þeirra eru vinir mínir frá fornu fari, frá því að ég var að spila í hljómsveitum. Ég var í hljómsveit sem hét Júpiters og þessi heimur er lítil kreðsa. Þarna eru líka gamlir skólafélagar úr MH og þetta leiddi allt af sjálfu sér,“ segir Haraldur í samtali við DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.