Þúsundir mótmæltu í janúar 2008 en rúmlega 700 hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem lýst er yfir ábyrgð á árás á Alþingi. Mynd/Stefán Karlsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis segist ekki ætla að senda undirskriftir rúmlega 700 einstaklinga sem lýsa yfir ábyrgð á því að hafa gert árás á Alþingi í lögreglurannsókn. Það var skrifstofustjóri Alþingis sem fór þess á leit í bréfi til lögreglu að fram færi rannsókn á máli níumenninga sem hafa verið ákærðir samkvæmt 100. grein hegningarlaganna fyrir slíka árás.
Blaðamaður sendi fyrirspurn til Ástu fyrr í dag: „Munt þú sem þingforseti taka mark á undirskriftum þeirra 705 sem lýsa yfir ábyrgð á árás á Alþingi og senda undirskriftirnar í lögreglurannsókn?“ Ásta Ragnheiður svaraði: „Ég tók á móti undirskriftalistunum eins og ég hafði verið beðin um. Í því felst ekkert annað. Mál svokallaðra níumenninga er til meðferðar hjá dómstólum, á grundvelli ákæru ríkissaksóknara.“
Ásta svaraði því ekki hvort hún væri að lýsa yfir óbeinum stuðningi við níumenningana með því að krefjast ekki lögreglurannsóknar á játningum þessa fjölda fólks. Það var skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Bernóduson sem fór þess á leit í bréfi til lögreglu að fram færi rannnsókn lögreglu á máli níumenningana. Í Kastljósi hefur komið fram að í bréfinu var því velt upp hvort 100. greinin hefði verið brotin. Að rannsókn lögreglu lokinni var ekki minnst á þá lagagrein. Saksóknari hefur því metið það sem svo að meint brot heyrðu undir umrædda grein.
Í yfirlýsingunni sem rúmlega 700 manns hafa undirritað segir meðal annars:
„Við krefjumst þess að ríkið falli frá kærum á hendur nímenningunum. Telji saksóknari sig vanta ástæðu til að breyta um stefnu í málinu má til dæmis viðurkenna að á tíma árásanna hafi ekki verið hægt að vega að sjálfræði þingsins, vegna þess hvernig handhafar auðs og valda höfðu þá þegar grafið undan því með vel heppnuðum árásum innan frá. Eða hann getur litið til langvarandi hefðar fyrir því að ekki komi til kærumála vegna einstakra uppákoma í verkalýðsátökum.
Að öðrum kosti ætlumst við til að ákæruvaldið sýni þá samkvæmni að gefa út ákærur á hendur öllum þeim sem réðust á Alþingi veturinn 2008–2009, þar með talin okkur sem undir þetta ritum.“







Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir