Helgin var fremur annasöm hjá lögreglunni á Selfossi. Um kvöldmatarleyti á laugardag voru lögreglumenn á ferð í hringtorginu á Suðurlandsvegi við Hveragerði er ökumaður bifreiðar sem var á undan jók skyndilega hraðan og tók stefnu inn í Hveragerði eftir Breiðumörk.
Lögreglumenn fylgdu á eftir með forgangsljós og hljóðmerkjum. Ökumaður sinnti því engu og reyndi að komast undan með því að aka að heimili sínu og hlaupa inn í hús. Með honum í bifreiðinni var ungt barn. Akstur mannsins var háskalegur þar sem margt fólk var á gangi á gangstéttum meðfram leið ökumannsins. Maðurinn var handtekinn og færður í blóðsýnatöku en grunur leikur á um að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna.
Þá fóru lögreglumenn fóru í eftirlitsferð í vínveitingahús á Selfossi um helgina. Í einu tilviki komust lögreglumennirnir að því að manni undir tvítugu var afgreiddur með áfengi af bar. Málið verður tekið til rannsóknar og að henni lokinni verður ákveðið með framhald málsin.
Tveir karlar og ein kona voru handtekin síðastliðinn föstudag vegna gruns um tilraun til að smygla lyfjum og öðrum efnum inn í fangelsið á Litla Hrauni. Aðferðin fólst í því að fela efnin í bifreið sem annar karlmannanna hafði ætlað að láta bóna og þrífa á Litla Hrauni. Hann fékk svo hinn karlmanninn til að fara með bifreiðina og sækja hana. Sá hafði ekki vitneskju um smyglið. Konan er sambýliskona þess sem stóð fyrir smyglinu og var með honum í för þegar hann var handtekinn. Við yfirheyrslu viðurkenndi maðurinn að hafa staðið einn að þessu og hinum verið ókunnugt um fyrirætlan hans. Það voru fangaverðir á Litla Hrauni sem fundu efnin í bifreiðinni. Efnin verða send til efnagreiningar og þegar niðurstaða fæst úr henni fer málið til ákæruvalds.
Unglingspiltur slasaðist er hann hjólaði í veg fyrir bifreið á Suðurlandsvegi norðan við Ölfusárbrú. Pilturinn slasaðist lítils háttar og fór á heilsugæslustöðina á Selfossi þar sem gert var að sárum hans. Atburður þessi átti sér stað eftir hádegi síðastliðinn miðvikudag. Ökumaður bifreiðarinnar var á leið norður yfir brúna og þegar hann var komin yfir hana sá hann piltinn á reiðhjólinu fyrir framan bifreiðina og tókst ekki að koma í veg fyrir áreksturinn. Hjólreiðamaðurinn var ekki með hjálm
Þá var brotist var inn í bifreið á athafnasvæði Vegagerðarinnar í Hrísmýri á Selfossi á helginni og stolið úr henni Tetra handtalstöð. Ekki er vitað hver þjófurinn er. Hver sá sem veitt getur upplýsingar um málið er beðinn að hafa samband í síma 480 1010.
Fólksbílakerra hvarf frá Laxabakka 3 á Selfossi aðfaranótt síðastliðins fimmtudags. Hliðar kerrunar eru úr blikki en botn úr tré og hjólin eru óskermuð og kerran er án ljósa. Ef einhver veit um afdrif kerrunnar er hann beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.
Í síðustu viku var farið inn í tvær ólæstar bifreiðar á Selfossi og stolið úr þeim smámynt. Bifreiðaeigendur eru hvattir til að temja sér að læsa bifreiðum sínum í hvert sinn sem þær eru yfirgefnar.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir