ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

58 prósent vilja draga ESB umsókn til baka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:37 › 14. júní 2010
Meirihluti Íslendinga vill draga umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka.

Meirihluti Íslendinga vill draga umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka.

Tæp 58% aðspurðra segjast annaðhvort mjög eða frekar fylgjandi því að stjórnvöld dragi umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem markaðs og miðlarannsóknir, MMR, gerðu fyrir vefsíðuna Andríki. Það eru því næstum 6 af hverjum 10 landsmanna vilja að stjórnvöld dragi umsóknina til baka.

Tæpur fjórðungur er mjög eða frekar andvígur því að stjórnvöld dragi umsóknina til baka. Lítill munur er á afstöðu eftir kyni, en talsverður munur er eftir menntun. Stuðningur við að draga umsóknina til baka er meiri hjá þeim sem eiga skemmri skólagöngu að baki.

Tveir þriðju telja að þeim 990 milljónum króna sem áætlað er að verja í umsóknarferlið sé illa varið. 846 voru spurðir og tóku 86 til 90% afstöðu til spurninganna tveggja. Könnunin sem gerð var fyrir Andríki, var gerð dagana 8. - 10. júní og notaðist við tilviljanakennt úrtak úr þjóðskrá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?