„Okkur verður ekkert refsað fyrir að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael en spurningin er hvort það muni skila einhverju, þannig að aðrir geri það sama,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og kennari við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Utanríkismálanefnd Alþingis hélt fund í gærkvöldi í þinghúsinu að beiðni Birgittu Jónsdóttur um árás ísraelska hersins á skipalest sem var á leiðinni til Gaza með hjálpargögn. Forystumenn félagsins Ísland-Palestína voru boðaðir á fundinn í fyrsta skipti í 23ja ára sögu félagsins en utanríkisráðherra sat einnig fundinn.
Silja segir markmiðið með því að slíta stjórnmálasambandi við ríki til lengri tíma vera að þvinga ríki til þess að fara eftir kröfum um lýðræðislega stjórnarhætti, sýna mannúðlega framkomu við alla borgara og þar fram eftir götunum.
„Það sem þetta þýðir er að við myndum ekki lengur hafa konsúl og sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi myndi ekki gegna þeirri stöðu lengur,“ segir Silja og tekur fram að þannig myndu formleg samskipti á milli ríkjanna ekki lengur vera til staðar. Hún segir þetta að mestu leyti vera formlegt atriði en markmiðið væri að fá aðrar þjóðir til þess að fylgja á eftir, og einangra þannig Ísrael á alþjóðavettvangi, „og þvinga þá til þess að bregðast við kröfum annarra ríkja vegna þess að þeir gætu ekki lengur átt eðlileg samskipti á alþjóðavettvangi,“ segir hún.
Silja líkir þessu við það þegar viðskiptaþvingunum var beitt á Suður-Afríku samhliða því að stjórnmálasambandi var slitið. „Þegar þetta fer að hafa áhrif á líf venjulegs fólks, þegar suður-afrískir íþróttamenn fengu ekki að keppa í alþjóðakeppnum, þá var gripið til aðgerða,“ segir Silja.
Framhaldsfundur verður um málið í utanríkismálanefnd í hádeginu í dag. Einnig verður utandagskrárumræða um málið á Alþingi í dag.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
